18.11.2022

Eyðsluvísitala

Hin almenna eyðslukló blæðir þessa vikuna. Eyðsluvísitalan hefur aldrei mælst eins há og í dag en stjórnlaus hækkun á flugi milli vikna er farin að bíta. Lítil hreyfing annarsstaðar og vísitölunefnd íhugar alvarlega að breyta undirliðum.

Eignavísitala

Það er kátt á hjalla hjá eignafólki þessa vikuna. Augljóst “uptrend” er á eignavísitölunni, þrátt fyrir þráláta lækkun í heimi bálkakeðjunnar. Sam Bankman-Fried ber alla ábyrgð á því. Annars hefur fasteignaverð í 101 aldrei mælst eins hátt og því ástæða fyrir fasteignafúskara að opna kampavín í kvöld en ástæða fyrir bálkakeðjubjána að koma sér aftur á vinnumarkaðinn.